Heil og sæl
já ég er komin heim...váá..Þetta var alveg
frábært. Ferðin hófst á föstudagskvöld eftir smá bita
frá MR KFC, en fyrir hönd annarra kvenna með mér í hóp..Þá mælum
við ekki með svona mat fyrir ferð.
Strauið var tekið á Geysirinn,þar sem ferðin
byrjaði frekar vel..jamm ég ætla að segja frekar vel..við fórum í
góðum fíling inn á Geysi að nota wc og röltuðum síðan að
kagganum...rosa gellur á leið í kvennaferð...togað var í hurð...svo
var horft hver á aðra...góða spurningin spurð "hvar eru lyklarnir"
og svo var hlegið..jamm "þeir eru INN Í bíl", ferðin semsagt
byrjaði VEL, við læstar úti
En köld eru
kvennaráð..fórum inn, fengum að láni eitt stykki testastrón og vír
með því og seisei við komnar inn í kaggann og brunað af stað.
jeiii Er komið var á kjalveginn þá blasti við okkur,
enginn snjór en mikil hálka og ákváðum við því að taka okkur smá
hálfsnúning og gekk það vel...ég var nú undir stýri og ég
kann mitt fag..ekki satt??? Þegar vel var
komið áleiðis,læddist að okkur eitt stykki patrol sem reyndist vera
Agnes, og leyfðum við henni (af góðmennsku) að fara framúr
og hvarf hún með því sama :0)
Hveravellir buðu okkur velkomnar um 23:30 og var
tekinn upp 1sti bjór með þessum þvíllíka sælusvip en það dugði ekki
lengi ALLAR já allar voru sofnaðar fyrir kl 01:00..
Þá var ekkert annað gert en að taka laugardaginn
snemma.. rokið var á lappir um 9, og var ákveðið að þær sem vildu
fara að miðju myndu fara þangað og nokkrar ætluðu að taka strauið
að langjökli og athuga færð þangað fyrir þær sem ætluðu jökulinn
heim á sunnudag...
Við fórum með miðju hópnum...alls í þeim hóp voru
10 bílar.. ferðin byrjaði vel...nánast enginn snjór en þegar aðeins
lengra var komið þá urðu skaflarnir fleiri..og náðu margir að festa
sig sem var bara fínt...smá aksjón..það verður að fylgja...
Síðan fór þetta að verða soldið laaangt...það voru bara alltaf
einhverjir að festa sig og var leiðin að verða ansi seinfarin..
ákveðið var að fara aðeins að Ingólfsskála og snæða þar og snúa við
vegna tímaleysis..
Bakaleiðin byrjaði vel en þeir sem festu sig
ekkert á leið inn úr fóru að festa sig núna og öfugt......Sá rauði
brunaði áleiðis upp brekku en rann frekar mikið til hliðar..
en
allt var frekar með kyrrum kjörum í þeim bíl þangað til að opnað
var fyrir talstöðina og sagt mjöög róólega.."ég er í
sjálfheldu"....Mjallan reddaði málunum og gerði það virkilega vel
....ferðin hélt áfram en þegar var langt komið þá fór
fallegi sjeffinn að stríða..hann ætlaði að taka eina
festu, hann bara ætlaði að láta draga sig og verða sá
síðasti.
..en þrjóskan í bílstjóranum gaf honum ekki færi á því
og með miklum hvatningarorðum frá Svandísi þá hafði hann sig
loksins upp og með miklum og flottum tilþrifum þá varð hvíti
fallegi sjeffinn fyrstur og var mikið klappað í þeim hvíta

Loksins var komið að skála um 21 og voru allir
mikið fegnir að vera komnir...2 eða 3 bílar fóru í
björgunarleiðangur að kerlingarfjöllum, því frést hafði frá
neyðarlínunni að jeppamaður sæti þar vel fastur og væri ekki
leiðinlegt ef meðlimar í kvennaferð myndu nú bjarga
manngreyinu...en allt kom fyrir ekki... reyndist maðurinn vera í
1200m hæð og vera skíðagöngumaður og náðu vélsleðamenn honum.. allt
er gott sem endar vel...
Matur var borinn á borð um 23 og var þetta alveg
æðislegur matur og við fengum líka eftirrétt (aldrei hef ég fengið
eftirrétt á fjöllum..nema ef bjór er talinn eftrréttur
:0) Síðan var tekinn upp bjór og spjallað, þegar
sá bjór var búinn þá var annar tekinn upp..en það gekk sko ekki
alveg svona koll af kolli..þá kíkti í heimsókn þessi þreyta sem við
köllum og haldið var til náða...ég veit hvað þið eruð að
hugsa..SUCKERS..
án allra karla og buru og við farnar að
sofa...En hún Sigga hélt upp heiðri hvíta sjeffans og fór með þeim
síðustu að sofa... Daginn eftir var vaknað og kíkti þá i heimsókn
Samviskubitið.
.sem hvíslaði í eyrun...WHY..WHY..bara tveir
bjórar..puffff
Haldið var á heim á leið um kjölinn...en ekki var
mikið hlakkað til að keyra í snjóleysu og hálku heim en viti
menn kjölurinn var bara með fullt af snjó og náði hvíti sjeffinn að
festast..
á kjalveginum..hahaha...Hláturskast var tekið í
þeim hvíta og reynt að kalla upp þann rauða um að veita okkur einn
vænann drátt en við náðum ekki upp einu orði..En Íris á þeim rauða
kallaði upp að hún væri kannski búin að rústa millikassanum..og með
þeim orðum fylgdi hlátur..Við rauðkurnar stukkum yfir og kom þá í
ljós að Íris er ansi sterk, hún sem sagt braut hlífina sem er um
stöngina
......sá hvíti fékk sér drátt og haldið var áfram
ferðinni eftir góðan hlátur... stuttu síðar stoppaði Cruiser sem
var með okkur í för..(by the way,hann er gamli líkbíllinn í
rangárvallasýslu) kom þá ljós að bölvuðu loftpúðarnir héldu engu
lofti og hrundi allt undan...
OG hvað gera kellur þá

Drullutjakkurinn var tekinn undan Súkku sem var
með í för og bíllinn tjakkaður upp og málið lagað..söss söss ekkert
mál fyrir kvennslur.....
Þá er kannski málið að við höfum þá eitthvað að
gera í ferð með köllunum ekki satt??????
úff þetta er orðin ansi löööng skrif hjá mér...
Ég ætla að setja inn myndir í kvöld... Og Elli minn
eins og þú heyrir elskan þá er mar frekar klár í
þessu...ííííhhaaaa... Og minn hvíti plummar sig vel í höndum kellu
hehehe en takk samt fyrir að bjóða fram Móparinn ég hefði vel
þegið hann ef ég hefði þurft á einhverjum með testastón til hjálpar
:0)
Þangað til næst
Kv Lóló og sjeffinn 